San Antonio Spurs unnu Dallas Mavericks 104-90 í þriðja leik liðanna og eru því komnir í 3-0 og þurfa að vinna einn leik í viðbót til að komast í úrslit vesturdeildarinnar. David Robinson var stigahæstur með 19 stig en Tim Duncan skoraði 18 stig. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki með 15 stig.

Philadelphia 76ers vann Toronto Raptors 97-92 og jöfnuðu því einvígið 1-1. Allen Iverson átti stórleik og skoraði 54 stig er það persónulegt met hjá honum í úrslitakeppni og skoraði hann síðustu 19 stig Sixers í leiknum, Vince Carter skoraði 28 stig.