Hvernig væri ef einhver snillingur myndi pósta hérna á korkana hvenær næsti leikur verður og svona? Eða það verður í tilkynningum og svo er hægt að spá í leikinn líka? Gefa svona álit og álíka.

En varðandi Digital ísland, þegar sjónvarpið verður stafrænt er þá ekki hægt að horfa á þessa leiki þegar maður vill, bara endursýnda eða einhvern fjanda? (Veit ekki alveg hvernig Digital Ísland virkar, minnir að það var einhvernveginn svona.)