Sælir, sælar.

Ég ætla að byrja á því að við þurfum að vera duglegri að skrifa pósta, rifja upp gömul og góð körfubolta tímabil í Nba og eitthvað.

En já, fólk er að segja að þeir hati LA. Lakers, og vona að þeir vinni ekki en ég sjálfur held ekki með Lakers en mér finnst ekkert skrítið að þeir myndu vinna, þeir eru með frábært lið. Reynda spilara og góðan þjálfara. Fólk er að segja að þeir hati Lakers svo mikið, ég skil bara ekki afhverju. Ég sjálfur er ekki viss hvort ég vilji að Minnesota vinni Lakers vegna þess að mér finnst Payton og Malone eiga skilið eitt stykki titil áður en þeir leggja skóna á hilluna.<br><br>kv. Höddi