Það er búið að tilkynna hverjir taka þátt í troðslukeppni stjörnuleiksins og því miður held ég að hún verði ekki eins spennandi og í fyrra, miðað við keppendur.
Desmond Mason tekur ekki þátt í þetta sinn, er líklegast þreyttur á því að tapa fyrir J-Rich. Þeir sem taka hinsvegar þátt eru þeir:
Jason Richardson leikmaður GS Warriors og tvöfaldur sigurvegari troðslukeppninnar
Ricky Davis leikmaður Boston Celtics
Chris Andersen leikmaður Denver Nuggets
Fred Jones leikmaður Indiana Pacers.

Ricky Davis er frábær troðari og gæti alveg keppt við Jason Richardson en þeir Andersen og Jones eru óskrifað blað. Ég hef aldrei séð neitt með þeim, það eina sem ég veit um þá er að Andersen er mjög góður blokkari og Fred Jones…tja, hann er hjá Indiana og spilar 17 mín í leik…

Maður á samt aldrei að segja aldrei og kannski koma þeir með flottar troðslur…<br><br><b><font color=“#000080”>Kristján S</font></b>

<a href="http://www.hugi.is/stjornendur/bigboxes.php?box_type=skilabodaskjodan&page=new_msg&to_user=SirK“>Skilaboð</a> - <a href=”mailto:kr1ss1@hotmail.com“>E-Mail</a>

Stjórnandi á <a href=”http://www.hugi.is/korfubolti">körfu</a