Brasíliski nýliðinn og leikstjórnandinn Leandro Barbosa hjá Phoenix Suns bætir sig og bætir. Eins og margir vita var hann með 27 stig gegn Chicago Bulls með eitt stykki Jamal Crawford í fésinu á sér. Og var með 21 stig (hans aldur) og frábæra nýtingu gegn Seattle SuperSonics(Sharp shooter of the game). Barbosa var með 3/4 fyrir utan 3 stiga og 9/14 inni. Hann getur ekki fyllt uppí skarð Marbury en hann gerir sitt besta með ágætum. Starbosa eins og hann var kallaður eftir Sonics leikinn er núna með 7.0 stig, 2.0 stoðsendingar og 1.30 fráköst í leik. Nú ætla ég að vitna í suns.com,þótt hann líti út fyrir af vera 5 ár í að fara raka sig er margur knár þótt hann sé smár. Það verður skemmtilegt að fylgjast með þessum hæfileikaríka dreng að vonandi bæta sinn leik og komast langt.

Takk fyrir mig,

MC Mini