Jæja nú er staðan í NBA komin inn á síðuna hvernig líst mönnum á? Við munum reyna að uppfæra hana dags daglega og þá helst fyrir hádegi, en það mun auðvitað koma fyrir að við náum því ekki…

Síðan er það að frétta að við Goat eru á fullu að semja spurningar fyrir triviu sem mun koma núna inn einhvern tíman um mánaðarmótin. Þetta verður vegleg trivia, svona 20 spurningar, þá blanda af erfiðum og svo léttari svo að allir geta tekið þátt en samt yrði krefjandi fyrir viskubrunnana um körfubolta. Við ætlum að reyna að hafa verðlaun fyrir sigurvegarann, líklegast e-r ákveðinn stigafjöldi ef við náum að koma því í gegn.

Síðan vill ég bara hvetja sem flesta að vera virk á þessu áhugamáli og gerum saman þetta að veglegu áhugamáli.

Kveðja SirK