NJ Nets og Miami Heat spiluðu í gær og úrslitin urðu vægast sagt mjög undarleg. Nets voru með fullskipað lið en einn besti leikmaður Heat, Dwyane Wade var meiddur. Leikurinn endaði 85-64 fyrir Heat, 21 stigs tap.
Nánast allir leikmenn Nets áttu lélegan leik, Kidd var með 9 stig og 4-19 skotnýtingu, Richard Jefferson 15 stig og 5-14 nýtingu og Kerry Kittles 8 stig og 3-12. Nets var með aðeins 28% nýtingu sem er náttúrulega algjör hörmung.
Hjá Miami var enginn leikmaður áberandi bestur en 7 leikmenn skoruðu 10 stig eða meira. Eddie Jones var með 18 stig og Lamar Odom 12 og 18 fráköst. En það sem mér fannst merkilegast við leik Heat var kínverjinn Wang Zhizhi. Hann hefur aðeins spilað 6 leiki í vetur en skoraði 11 stig á 11 mínútum, góður árangur.