“Isiah Thomas framkvæmdastjóri New York Knicks er þegar byrjaður að taka til í herbúðum liðsins eftir að hafa tekið við starfinu á dögunum. Í nótt sendi Thomas fjóra leikmenn frá liðinu til Phoenix Suns í skiptum fyrir Stephon Marbury, Penny Hardaway og Cezary Trybanski. Frá Knicks fara þeir Antonio McDyess, Howard Eisley, Charlie Ward, Maciej Lampe. Að auki fá Suns rétt til þess að taka Milos Vujanic í sínar raðir og liðið fær tvo valrétti frá Knicks.” ( tekið frá <a href="http://www.mbl.is">Morgunblaðinu</a> )

Hvort liðið var að græða, að ykkar mati?