Hvernig fannst ykkur (sem sáuð hann). Mér fannst fkn bömmer að Iverson var meiddur en hinsvegar mjög gaman að fá að sjá LeBron spila. Ég hafði séð hann spila í menntaskóla en þar slátraði hann bara þessum pollum, allt annað en í NBA. Mér fannst hann vera skemmtileg blanda af Magic og Jordan. Mikið hittnari en Jordan var á fyrstu árum sínum, allavegana úr þriggja stiga skotunum. Var ekki að troða neitt rosalega en minnti samt oft á Jordan þegar hann drævaði inní og tók oft svona “jordanleg” skot. Svo minntu sendingarnar hans pínu á “Magic”.

Skemmtilegur leikur og urðum við vitni að fyrsta útisigri Cavaliers í rúmt ár.<br><br>http://pb.pentagon.ms/the-goat/