Skemmtileg myndin af Candy Man og Earl Boykins. Ég hef sagt það áður að Earl Boykins er einn vanmetnasti leikmaður NBA. Hefur verið óheppinn með að festast ekki í sessi hjá liði en núna virðist sem að Denver menn séu mjög hrifnir af honum og sumir sem vilja losa sig við Andre Miller því þeir hafa Earl Boykins. Denver eru mikið að nota Miller og Boykins saman sem bakverði þrátt fyrir að vera langminnsta bakvarðapar deildarinnar. Málið er líka það að Boykins er það lítill að liðin eru hálf hrædd við að nota hann þess vegna hefur hann farið frá öðru liði til annars. Olowakandi er bara lélegur leikmaður sem er ágætur center á NBA mælikvarða, ótrúlega lélegir centerar í deildinni. Hann hefur meira að segja verið lélegri en sumir héldu hjá Minnesota.