Jón Arnór Stefánsson lék í 18 mínútur af alls 48 með Dallas Mavericks í æfingaleik gegn Orlando Magic sem fram fór í gær. Mavericks vann leikinn, 99:89, og skoraði Jón Arnór 2 stig, hann hitti aðeins einu af alls átta skotum, hann tók 2 varnarfráköst, gaf eina stoðsendingu, tapaði knettinum einu sinni og fékk að auki þrjár villur. Alls voru 13 leikmenn notaðir í leiknum í liði Dallas en næsti æfingaleikur liðsins er gegn New Orleans Hornets á laugardag, 11. okt.

Ég vona að Jóni gangi mjög vel í NBA og það er alltaf gaman að hafa Íslendinaga í þeirri deild eins og þegar risinn þarna var í Lakers. En ég óska Jóni Arnþóri alls hins besta og við Íslendingar verðum að hvetja hann áfram!

Kveðja Birki