Sacramento Kings vann frekar auðveldan sigur á Utah Jazz, 111-91, í úrslitakeppni NBA í nótt og sló þar með Utah Jazz út úr keppninni. Sacramento vann fjóra leiki en Utah Jazz aðeins einn. Chris Webber skoraði 26 stig og og hirti 11 fráköst og Peja Stojakovic skoraði 22 stig. Hugsanlegt er að þetta hafi verið síðasti leikurinn sem John Stockton og Karl Malone leika saman í Utah Jazz en Malone skoraði 14 stig en Stockton 8.
Sacramento mætir annaðhvort Dallas Mavericks eða Portland Trail Blaizers í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Liðin kepptu í nótt og sigraði Portland 103-99. Dallas er að vinna í viðureigninni 3-2 en Dallas vann fyrstu þrjá leikina. Sjötti leikurinn verður á morgun. Charlotte Hornets vann Philadelphia 76ers 93-91 en Philadelphia er yfir, 3-2. Næsti leikur liðanna verður á föstudaginn. Detroit Pistons vann Orlando Magic 98-67, í Austurdeildinni en Orlando er að vinna 3-2.

Kveðja kristinn18