Wow… Nú verður fjör! Undanúrslitin í körfunni byrja á morgun(laugardag). Þá verður leikur Grindvíkinga og Tindastólsmanna og á sunnudag verður leikur KEFLVÍKINGA og NJARÐVÍKINGA ! Það vita nú flestir að kef vs. nja eru bestu leikir sem íslendingar geta horft á á íslandi, okey eða allavegana með þeim bestu. Þessi rimma verður svaðaleg og býst ég við og vona að hún fari í 5 leiki, þrátt fyrir að ég sé Keflvíkingur, því þessir leikir eru schniiiiiild! Sömuleiðis spái ég því að til oddaleiks þurfi í viðureign Grindvíkinga og Tindastólsmanna.

Mín spá:
Keflavík - Njarðvík = keflavík 88-85
Grindavík - Tind = 105-98

Endilega komiði með ykkar spár…