Tindastóll og ÍR unnu og því þarf þriðja leikinn
Tindastóll vann Hauka 81:79 eftir framlengdan leik í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Intersportdeildarinar í körfuknattleik og á sama tíma lagði ÍR lið Keflavíkur 103:86 þar sem Eugene Christopher gerði 25 stig og þeir Hreggviður Magnússon og Sigurður Þorvaldsson 20 hvor. Guðjón Skúlason gerði 20 stig fyrir Keflavík eins og Edmund Saunders. Þriðju leikir liðanna verða á þriðjudaginn.
BLELLER!!!!