Voðalega finnst mér þetta Utah Jazz lið alveg hundleiðinlegt. Það er aðeins einn maður sem ég persónulega fíla og það er DeShawn Stevenson en hann átti fínan leik á móti New Jersey Nets. Ég ber auðvitað mikla virðingu fyrir Pick&Roll tvíeykinu Stockton og Malone en mér finnst bara bull að vera sýna leiki með Utah Jazz. Þeir voru heppnir á móti New Jersey þar sem Kirilenko (lítur úr eins og Drago úr Rocky myndunum) skoraði sigurkörfuna á síðustu sekundúnum. Það var mikið af töpuðum boltum í leiknum á móti Nets og persónulega fannst mér þetta ekki skemmtilegur leikur en svona er þetta.