MIKIÐ VAR!!!

Fyrsti deildarleikurinn á þessu tímabili,sem er sýndur á SÝN, var í kvöld og þetta líka toppleikur.
San Antonio vann Sacramento 104-101 í mjög skemmtilegum og spennandi leik.
Tim Duncan var langbestur í liði Spurs en Parker, Rose og Ginobili stóðu sig líka vel. Steve Smith og Danny Ferry spiluðu ekkert en hafa yfirleitt spilað 10-20 mínútur síðustu tímabil. David Robinson er enn meiddur en á að verða klár fyrir úrslitakeppnina.
Vlade Divac og Mike Bibby spiluðu best í liði Sacramento og var gaman að sjá hvað Divac er seigur ennþá. Stojakovic, Clarke og Christie áttu góða spretti. C.Webber og S.Pollard eru meiddir en verða komnir í slaginn á næstu vikum.<br><br>Nil Satis Nisi Optimum