Houston Rockets, hver man ekki eftir því þegar þeir voru að meika það feitt ? Ég byrjaði að halda með þeim þegar úrslitaviðureignin við New York var í gangi. Þá hafði ég ekkert vit á körfubolta og ákvað bara að halda með liðinu í rauðu búningunum :) En síðan þá hef ég aldrei yfirgefið þá og stið við bakið á þeim enn þann dag í dag. Eftir að þeir unnu seinni titilinn fór að síga á ógæfuhliðina hjá þeim en svo þegar Olajuwon, Barkley og Pippen voru allir komnir í liðið hélt ég að nú færu hlutirnir loks að gerast! En nei, Barkley var tregari en nokkurn tíman fyrr og hrakti Pippen á brott, og nú er Barkley líka farinn, og ég var bara feginn þegar hann hypjaði sig! Tímabilið í fyrra var arfaslakt en það kom upp ný stjarna, Steve Francis að nafni (annar af nýliðum ársins) og nú hafa bæst fleiri nýir menn í hópinn sem ætla að sigra heiminn og undir forystu Hakeem held ég að þetta lið fari langt í vetur, þeir eru þegar búnir að vinna Lakers einu sinni :)
Blandan þetta árið er sterk og ég er ekki í vafa að nú loksins sjáum við Rockets menn fram á bjartari tíma!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _