Lakers töpuðu fyrir Sacramento Kings á föstudagskvöldið. Kom þetta mörgum á óvart og er langt síðan Lakers var undir í úrslitakeppni. Kings unnu Lakers á þeirra eigin heimavelli 103-90. Lakers spiluðu lélega mest allan leikinn og var sigur Kings sjaldan í hættu. Kobe Bryant skoraði 22 stig fyrir Lakers og Shaq 20 stig. Það nægði ekki til sigurs því alls 6 menn Kings skoruðu yfir 10 stig. Chris Webber var sigahæstur með 26 stig og Mike Bibby með 24. 3ja stiga kóngurinn Peja Stojakovic spilaði ekki með en spilar hann eflaust með í kvöld.

Boston unnu góðan sigur á New Jersey Nets og verður þessi leikur skráður í sögu NBA. Nets voru yfir meiri hluta leiksins, og í enda 4 leikhluta voru þeir 21 stigi yfir. En í fjórða leikhluta skoraði Pierce alls 19 stig og vann Boston fjórða leikhluta 41-16! Nets spiluðu hræðilega í 4 leikhluta og klúðruðu 8 þriggja stiga skotum og hittu 4 af 22 skotum sínum.

Úrslitin úr báðum leikjunum kom verulega á óvart. Lakers undir 2-1 og New Jersey tapi hræðilega
góðu forskoti. Ég spái nú samt að Lakers og Nets vinni næsta leik. Lakers keppa í kvöld við Kings klukkan 21:30 beint á sýn. Nets keppa svo við Boston á mánudaginn.
<B>Azure The Fat Monkey</B>