Sacramento komust áfram í Western Conference Finals þar sem þeir munu að öllum líkindum mæta Lakers, ef að þeir vinna einn af næstu þrem leikjum sínum. Sacramento sigruðu Dallas í fimmta leik liðanna og er staðan þá 4-1. Lokastaða leiksins var 114-101. Mikið var skorað í leiknum og voru alls þrír leikmenn í Kings sem yfir 20 stig. Mike Bibby og Chris Webber voru með 23 stigin hvor og annars árs nýliðinn Hedo Turkoglu var með 20 stig og 13 fráköst. Kings náðu mest 17 stiga forskoti í leiknum og var sigur þeirra sjaldan í hættu. Dirk Nowitzki átti samt sem áður stórleik fyrir Dallas með 32 stig og 12 fráköst. Michael Finley skoraði 26 stig fyrir Dallas og hirti 6 fráköst.

Fyrir mig voru þetta mikil vonbrigði. Ég hefð gjarnan viljað sjá Dallas komast lengra en betra liðið vann. Nú er bara að vona að Kings nái að komast alla leið í Vesturströndinni.
<B>Azure The Fat Monkey</B>