Kevin Garnett Kevin Garnett

Kevin Garnett hlýtur að vera einhver allra öflugasti small forward í NBA deildinni í dag. Hann er 2,11

m á hæð og 99,8 kg. Hann er fæddur 19 maí 1976. Kevin Garnett fór beint frá High School (Farragut

Academy (IL)) í NBA deildina. Hann hefur ekki ennþá fengið hring en mun vonandi fá hann á næstu

árum.

Hann kom inn í deildina 95-96 og spilaði með Minnesota Timberwolves og hefur spilað þar síðan.

Hann skoraði að meðaltali 10.4 stig, 6.3 fráköst og 1.6 blokk. Hann var númer 15 í blokkum í NBA sitt

fyrsta ár.

Hann fór miklum framförum næsta ár. Hann hækkaði meðaltalið sitt í öllu og varð eftir tímabilið 9 í

blokkum í NBA. Hitti úr næstum 50% skota sinna 75% víta sinna. Á leiktímabilinu náði hann sínu 1000

stigi og sínnu 1000 frákast. Síðan komst hann í NBA All- Star stjörnuleikinn ungur að aldri aðeins 20

ára.

Tímabilið 97-98 var stórt tímabil fyrir hann. Hann sannaði sig sem alhliða leikmann. Hann náði sínu

fyrsta triple- double þ.e.a.s. hann náði tveggja stafa tölu í skori, fráköstum og stoðsendingum. Sló

mörg gömul Minnesota met, var meðal þriggja annarra leikmanna til að ná 100 stolnum boltum og

hundrað blokkum (aðrir voru Webber, Outlaw og McDyess). Einnig náði hann sér í byrjunarlið í All-

Star stjörnuleiknum. Einnig afrekaði hann það að spila alla leiki og byrja alla leiki inná.

Hann hélt áfram á sömu braut næsta ár og skoraði 20,8 stig að meðaltali í leik, 10.4 fráköst, 1.8 blokk

og 4.3 stoðsendingar. Hann spilaði aðeins 47 leiki. Varð útnefndur leikmaður vikunnar þann 20 mars til

4 apríl. Skotnýtingin hans fór aðeins niðrá við.

99-00 var eitt af bestu árum hans. Hann missti aðeins einn leik allt tímabilið en spilaði að meðaltali 40

mínútur í leik. Varð níundi maðurinn í sögu NBA til að ná að minsta kosti 20 stig, 10 fráköstum og 5

stoðsendingum að meðaltali í leik. Þrisvar sinnum útnefndur leikmaður vikunnar (Mars 20-26, Des.

20-26, Nóv. 8-15) og leikmaður Janúar mánaðar.

Á seinasta leiktímabili hans náði hann 54 sinnum tvöfaldri tvennu. Varð 6. í fráköstum og 16. í stigum.

Hann varð stigahæsti leikmaður Minnesota Timberwolves á leiktímabilinu, spilaði sinn 400 leik og ná

ði sínu 4000 frákasti og 8000 stigi. Varð einu sinni útnefndur leikmaður vikunnar. Skoraði að meðaltali

22 stig, 1.8 blokk 5 stoðsendingar og 11 fráköst.

Þetta leiktímabil hefur hann verið að standa sig mjög vel og hefur leitt MT allt tímabilið með 42 sigra

27 töp. Er nr.2 sem varnarfrákastahæsti leikmaður deildarinnar, og númer 3 í tvöföldum tvennum.

Hann er að skora um 21 stig að meðaltali og 12 fráköst.

Persónulegt: Garnett á tvær systur, eina yngri og eina eldri. Hann ólst upp í South- Carolina og var

aðdáandi Los Angeles Lakers. Er með tvö tattú, eitt sem stendur “K.G.” og annað með hönd sem

heldur á körfubolta með orðunum “Blood, Sweat and Tears”. Uppáhaldsmatur hans eru hamborgar,

franskar og pizza. Tony Dorsett og Magic Johnson eru íþróttahetjur hans.

Hérna er ég svo með bút úr viðtali í tímaritinu Slam.

Slam: You fell like this is the best team you´ve been a part of?
KG: This is probably…as far as team, guys actually giving a crap about each other, guys having each

other´s back, for sure this is probably the best team I´ve been on. Not as far as talent-wise, but as far

as team-wise.
Slam: You said you add something new to your game each year.
KG: I added a little jumper to my game this year. The ball-handling, taking quality shots, seein´ the

floor. The game is not just from a skill perpective, I think it´s from an understanding-the-game

perspective, you know what I´m sayin´? In practice, I work on seeing the floor, I work on taking quality

shots, making quality decisions.
Slam: What if you took the best players from any one collage nad the best people straight outta high

school…
KG:{Laughs} We would smash 'em. We´d definitely smash some people.

Allar heimildar teknar frá <a href="http://www.nba.com/"> nba.com </a
<B>Azure The Fat Monkey</B>