Michael Jordan með 44 stig !!! Michael Jordan skoraði 44 stig þegar Washington Wizards töpuðu ( enn eina ferðina ) fyrir Utah Jazz 101-92. Jordan hitti úr 17 af 33 skotum og var það í 202 skipti á ferlinum sem hann skorar yfir 40 stig !!! Þessi maður er sko ekki mannlegur það er alveg á hreinu. Ég vona bara að liðið fari að drífa sig í að vinna leiki, af því að ég vona að þeir komist í úrslitakeppnina. Það væri svipaður árangur að koma þessu liði í úrslitakeppnina og að vinna titilinn ef hann væri með einhverju almennilegu liði.