Mig langaði að athuga hvort einhver hefði áhuga á að vera með í Fantasy deild, eða Draumaliðsleik eins og landinn hefur þýtt það.

Deild þessi er á Yahoo og er í stuttu máli svona:

Þú færð lista af leikmönnum í NBA, þú raðar helstu leikmönnum í þeirri röð sem þú vilt fá þá fyrir valið (eða lætur listann standa eins og hann er) síðan fer valið fram (líklega föstudag/laugardag).

Hvert lið kemur síðan til með að samanstanda af:
G, PG, SG, F, SF, PF, C, C, Util, Util og rest á Bench

Leikmenn má svo færa milli dag frá degi, eftir því hver er að spila þann daginn. Þetta skýrist allt saman. Stig fást svo fyrir: Stig+fráköst+stoðsendingar+blokk+stolnir-tapaðir-tæknivíti etc..

Menn þurfa að vera skráðir notendur á Yahoo og lítið mál að skrá sig ef svo er ekki.

Ég er aðeins að leita að mönnum sem hafa eitthvað vit á þessu eða brennandi áhuga því að til að berjast um sigurinn þarf að sinna liðinu mikið yfir tímabilið. Ég er semsagt Commissoner í þessari deild.

Áhugasamir sendi mér e-mailið sitt á xzibit@hugi.is og þá sendi ég áfram leiðbeiningar um hvernig hægt er að skrá sig í deildina.

Xzibit