Sæl öllsömul

Eflaust kannast einhver ykkar við mig af þessu áhugamáli en eflaust kem ég spánskt fyrir sjónir hjá öðrum.

Ég ákvað að gerast admin á þessu frábæra áhugamáli þar sem mitt mat var að sitjandi stjórnandi væri því miður ekki að standa sig í stykkinu, síður en svo.

Að ráða fram úr óreiðunni
Hér voru (og eru) tugir ósamþykktra mynda, eitthvað af könnunum og auk þess voru hér tvær ósamþykktar greinar. Algjörlega ömurlegt.

Ég er að vinna í því að koma skipulagi á hlutina og vonast til að geta unnið með núverandi stjórnendum, Lully og habibi, að því að rífa þetta aðeins upp og koma af stað skemmtilegum umræðum um frábæra íþrótt.

Örlítið um mig
Ég hef talsverða reynslu af admin-störfum, því ég var admin í nokkur misseri á /tolkien.

Körfubolti hefur ávallt verið stór þáttur í mínu lífi mínu og ég hef æft hann í mörg herrans ár. Ég æfi og spila með drengja og unglingaflokki Keflavíkur.
Ég hef áhuga á öllum körfuknattleik en þó sérstaklega íslenska boltanum.

Þó svo að hlutirnir gerist ekki einn tveir og bingó þá munu þið verða var við talsverðar framfarir hér á þessu skemmtilega áhugamáli.

Með kveðju
latex