Cedrick Holmes Cedrick Holmes snýr aftur.
Í kjölfar þess að Carlos Webb var sendur heim með skömm í hattinum, hefur verið samið við Cedrick Holmes um að koma aftur til að spila með ÍR-ingum. Cedrick Holmes átti frábært tímabil með ÍR í fyrra en hann var stigahæstur ÍR-inga með 19,9 stig og 11,7 fráköst yfir tímabilið auk þess að eiga stóran þátt í því að ÍR-ingar hömpuðu bikarmeistaratitli í febrúar sl. Cedrick kemur til landsins um eða eftir helgina svo hann verður til í slaginn fyrir Íslandsmótið þegar það hefst með leiknum gegn KR í KR húsinu 11. október. Þeir sem vilja kynnast kauða frekar geta lesið viðtal við hann sem birt var hér á ÍR-karfa.is fyrr á árinu.