Hakeem Olajuwon til Toronto Hakeem “the dream” Olajuwon var skipt til Toronto Raptors frá Houston Rockets fyrir 2 valrétti. Hakeem sem er 38 ára hefur allan sinn feril spilað fyrir Houston eða 17 ár, hann var valin númer 1. 1984 og hann spilaði einnig með Houston í háskóladeildinni. Þetta er mikill missir fyrir Houston, en hann leiddi þá að meisturum árið 1994 og 1995, og vann einnig MVP bæði árin.
Það má því búast við Toronto sterkum á næsta tímabili, því að Vince Carter er nýbúinn að skrifa undir 6 ára samning við liðið.

Aðrar breytingar síðustu daga:
LaPhonso Ellis til Miami
Danny Manning, Khalid El-Amin, Adrian Griffin og Darrick Martin til Dallas
Stephen Jackson, Bruce Bowen og Mark Bryant til San Antonio
Jacque Vaughn og Emanual Davis til Atlanta
Calvin Booth til Seattle
Ruben Patterson til Portland