Lakers vinnur 3. leikinn L.A Lakers unnu Sixers í 3. leik liðanna í Philadelphia, 96-91, og leiða núna einvígið 2-1. Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 32 stig og Shaquille O'Neal skoraði 30 stig og tók 12 fráköst. Það var hins vegar Robert Horry sem var hetja Lakers í leiknum eftir að Shaq fór útaf með 6 villur þegar 2:21 mínútur voru eftir af leiknum, og skoraði Horry 12 stig í 4. leikhluta og síðustu 7 stig Lakers í leiknum og klikkaði aðeins á einu skoti í leiknum og skoraði samtals 15 stig. Horry skoraði 3 stiga körfu þegar 47 sekúntur voru eftir af leiknum en hann skoraði þrjár 3 stiga körfur úr jafnmörgum skotum og innsiglaði svo sigurinn með fjórum vítum í lokin.
Allen Iverson skoraði 35 stig fyrir Sixers og Dikembe Mutombo var með 23.

Næsti leikur verður í Philadelphia miðvikudaginn 13. júní.