Lakers jafnar L.A. Lakers vann Philadelphia 76ers 98-89 í öðrum leik liðanna um NBA meistaratitilinn. Staðan er því jöfn í einvíginu 1-1. Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 31 stig og 8 fráköst, Shaquille O'Neal var með 28 stig, 20 fráköst, 9 stoðsendingar og 8 blokkeringar. Derek Fisher var með 14 stig. Allan Iverson skoraði 23 stig fyrir Sixers og Dikembe Mutombo var með 14 stig og 13 fráköst.

Næstu 3 leikir fara fram í Philadelphia og er næsti leikur á sunnudaginn 10. júní.