Philadelphia vann Lakers í framlengdum leik Los Angeles lakers töpuðu fyrir Philadelphia Seventy Sixers í framlengdum leik þar sem litli en stórsnjalli leikmaðurinn Allen Iverson skoraði 48 og leiddi félaga sína til sigurs í fyrsta leik úrslitakeppninnar. Shaq setti niður 40 stig og tók 20 fráköst. Af þessu fyrsta leik að dæma verður þetta rosa rimma og vona ég 4-3 sigur hjá Philly, því að þá væri þetta fullkomið fyrir Iverson. En ég er alveg hlutlaus og held ekki með hvorugu liðinu. Hvernig fer leikurinn á föstudag? Ég held að Lakers taki hann.