Scott Williams í leikbann! Leikmaður Millwaukee Bucks Scott Williams hefur nú verið settur í leikbann og má að þeim sökum ekki spila með í 7. leik liðsins á móti Philadelphia 76ers. Atvikið gerðist þannig að hinn knái Allen Iverson var í þann veginn að brjótast upp að körfunni þegar Williams sló olnboga sínum í hálsinn á Allen Iverson. Dómarinn sá ekki alvörunna í þessu þegar leikurinn var í gangi en þegar körfuboltasambandið horfði á þetta atvik fannst þeim ekkert sjálfsagðara en að setja hann í leikbann. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Scott Williams fer í leikbann fyrir svona rudduskap því þetta er þriðja skiptið á þessari leiktíð sem hann er dæmdur í eins leiks bann(Orlando apríl 22, Charlotte maí 17). Staðan í þessari viðureign er 3-3 og það lið sem vinnur næsta leik fer í úrslit NBA deildar.

Þeir sem ekki sáu leikinn geta séð myndbrotið<a href="http://www.nba.com/0001pvideo/iverson_a_flagrant_060101.avi"> hér.