Philadelphia jafnar. Philadelphia náði í nótt að jafna metin gegn Milwaukee í úrslitakeppni austurdeildar í NBA-deildinni í körfuknattleik. Philadelphia vann 89:83 og hafa liðin nú bæði unnið tvo leiki, en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki kemst í úrslit keppninnar og mætir þar LA Lakers.

Allen Iverson var stigahæstur í liði Philadelphiu með 28 stig, Dikembe Mutombo gerði 17 stig og tók 15 fráköst og Tyrone Hill var með 14 stig og 6 fráköst. Robinson var stigahæstur í liði Milwaukee með 20 stig og tók 10 fráköst.