Wizards fá fyrsta valrétt. Washington Wizards fengu fyrsta valrétt í lotteríinu um nýliðaval. Clippers voru í öðru sæti, Atlanta í því þriðja og svo þeir sem áttu mestu möguleikana til að fá fyrsta valrétt (Chicago) í fjórða sæti en þeir unnu bara 15 leiki allt tímabilið og þykir það afar slappt. Michael Jordan er án vafa ánægður með þetta lotterí sem gefur honum góðan tudda til að byggja upp liðið.

1. Washington 19-63
2. L.A. Clippers 31-51
3. Atlanta 25-57
4. Chicago 15-67
5. Golden State 17-65
6. Vancouver 23-59
7. New Jersey 26-56
8. Cleveland 30-52
9. Detroit 32-50
10. Boston 36-46
11. Denver 40-42
12. Seattle 44-38
13. Houston 45-37