Draumaliðaleikur í NBA: Önnur leiktíð Í október síðastliðnum var grein birt hér í körfuboltaáhugamálinu sem greindi frá leik á Sportingnews.com þar sem notendur gátu búið til sitt eigið draumalið í NBA, ókeypis. Hvert lið sem notandi bjó til fékk 35 milljónir dollara (í plati, að sjálfsögðu) til að raða í þetta lið sitt með 2 bakvörðum (guards), 2 framherjum (forwards), 1 miðherja (center) og sjötta manni (sixth man). Hver leikmaður kostaði ákveðið mikið eftir því hvernig hann stóð sig, leikmaður kostaði meira því betur sem honum gekk og lækkaði í verði ef honum gekk illa. Leikmaður fékk stig (tsnp) fyrir eftirfarandi hluti:

Hvert skorað stig (FG): +1 tsnp
Hvert skot sem klikkar (Missed FG): -0,5 tsnp
Hvert víti sem klikkar (Missed FT): -1 tsnp
Frákast (Rebound): +1,5 tsnp
Stoðsending (Assist): +2 tsnp
Stolinn bolti (Steal): +2,5 tsnp
Varið skot(Block): +2,5 tsnp
Tapaður bolti (Turnover): -1 tsnp
“Þreföld tvenna” (Triple double): +10 tsnp

Til að vera góður í leiknum þurfti maður að vera vakandi og fylgjast vel með úrslitum leikja, hvernig leikmennirnir í liðunum stæðu sig og svoleiðis, selja þá leikmenn sem stæðu sig ekki úr liðinu sínu og kaupa þá sem væru að standa sig vel eða ættu framundan auðvelda leiki. Til að byrja með máttu notendur selja og kaupa nýja leikmenn (skipta á leikmönnum) 4 sinnum eftir að þeir höfðu fullskipað liðið sitt og í hverri viku fékkstu 2 skiptingar í viðbót. Ef þú hafðir notað allar skiptingarnar þínar þá máttirðu ekki skipta á leikmönnum og þú varðst að bíða þangað til að þú fékkst fleiri skiptingar og sömuleiðis gastu sleppt því að skipta og safnað upp skiptingum. Þetta var mjög skemmtilegur leikur ég hafði mjög gaman af að spila hann.

Nú er kominn önnur leiktíð í þessum leik. Öll tsnp hafa verið núllstillt. It's anyone's game. Þeir sem hafa áhuga á þessu geta farið á slóðina http://fantasygames.sportingnews.com/hoops/season2/basic/home_good.html og búið sér til lið. Þú þarft síðan að velja þér deild til að spila í og ég hef stofnað mína eigin og býð öllum sem vilja að koma í hana. Svo megið þið bjóða mér í deildirnar ykkar ef þið viljið.
Deildin mín heitir: Icelandic Division
Lykilorðið er: karfa
Minni svo líka á að þú mátt hafa eins og mörg lið í gangi og þú ræður við. Gangi ykkur vel með þetta og endilega svarið greininni minni!

Game on!