Tim Duncan með stórleik San Antonio Spurs unnu Dallas Mavericks 105-87 í fimmta leik liðanna og unnu einvígið samtals 4-1. Tim Duncan skoraði 32 stig og tók 20 fráköst. Einnig átti Dirk Nowitzki hjá Dallas stórleik og skoraði 42 stig og tók 18 fráköst.

Spurs mætir Lakers í úrslitum vesturdeildarinnar, og segja margir að það sé hin raunverulega úrslitahrina.
Spennan er aðeins meiri í austurdeildinni, en þar hafa öll liðin unnið 2 leiki.


AUSTURDEILD


1-Philadelphia - 5-Toronto 2-2
2-Milwaukee - 6-Charlotte 2-2


VESTURDEILD

1-San Antonio - 5-Dallas 4-1
2-L.A. Lakers - 3-Sacramento 4-0