Aaron McKie besti sjötti maðurinn Bakvörður Philadelphia 76ers, Aaron McKie, var kosinn besti sjötti maður(varamaður) leiktímabilsins af íþróttafréttamönnum frá Bandaríkjunum og Kanada.

McKie fékk 57 atkvæði af 124 mögulegum, Tim Thomas hjá Milwaukee var annar með 27 atkvæði og LaPhonso Ellis hjá Minnesota var þriðji með 10 atkvæði.

McKie skoraði (11.6) stig að meðaltali í leik, tók (4.1) fráköst, sendi (5.0) stoðsendingar, stal boltanum (1.39) og lék (31.5) mín. að meðaltali í leik.

Hann varð aðeins annar leikmaður Philadelphia til að vinna þessi verðlaun. Hinn leikmaðurinn er Bobby Jones sem var kosinn besti sjötti maðurinn árið 1983.


Hér eru allir leikmennirnir sem fengu atkvæði

Aaron McKie, Philadelphia 76ers 57
Tim Thomas, Milwaukee Bucks 27
LaPhonso Ellis, Minnesota Timberwolves 10
Bobby Jackson, Sacramento Kings 9
Travis Best, Indiana Pacers 5
Ruben Patterson, Seattle SuperSonics 4
Rodney Rogers, Phoenix Suns 4
Steve Smith, Portland Trail Blazers 4
Donyell Marshall, Utah Jazz 2
Austin Croshere, Indiana Pacers 1
Tony Delk, Phoenix Suns 1