Ertu kannski gamall NBA aðdáandi sem horfði á jordan rústa deildini ár eftir ár, en nú veistu lítið sem ekkert? ertu ein af þeim sem langar að vera með í umræðum um NBA, en veist ekki hvað átt að segja? eða ertu bara einn af þessum sem vill bulla í vinnum þínum allt í einu með NBA visku þinni(félagarnir vissu ekki að þú hafðir einu sinni visku)?
Þá ætla ég að hjálpa ykkur smá, ég ætla að koma með nokkra setningar eða öllu heldur frasa um NBA í dag sem gætu hjálpað ykkur smá.
t.d

Rosalega er Nash búinn að standa sig vel eftir meiðsli.
Ég vissi að Lebron james væri góður en ekki svona góður.
Það er ótrúlegt hvað Artes fékk lang bann.
Ég held bara að Kobe verði stigakóngur í ár.
Rosalega er Shaq kominn í gott form.
Hvað er að gerast með Vinc Carter?
Er ekki bara Wade orðinn aðal maðurinn í Miami.
Ég held að Minnesota eigi eftir að fara langt í vetur, því að Garnet er svakalegur.
Eru seattle virkilega svona góðir?
Mér finnst Phoenix vera skemmtilegasta liðið í vetur?
Grant Hill hefur náð sér ótrúlega af meiðslunum.
Ég held að Okford verði nýliði ársins því að hann fær svo margar mín með Bobcats.
Detroit virka ekki eins sterkir og í fyrra.
Þeir hafa ekki náð vel saman þeir Tracy Mcgrady og Ming hjá Houston.
Ég held að Jordan gæti ekki einu sinni bjargað Bulls í ár, en framtíðin er þó björt.

Þetta eru bara nokkrir frasar við látum þetta nægja í bili.
En svo að sjálfsögðu spuriði félagana hvað þeim finnst og hendið svo inní frösum.
:)

p.s endilega bætið inn setningum ef þið viljið
Vertu þú sjálfur og gerðu það sem þú villt