New York Knicks vann Toronto Raptors, 97-89, í þriðja leik liðanna í úrslitakeppni NBA í kvöld. New York hefur þar með náð forystu í einvíginu, 2-1. Allan Houston var stigahæstur hjá New York með 24 stig, Latrell Sprewell skoraði 20 stig og Glen Rice skoraði 18 stig. Antonio Davis skoraði 21 stig og tók 12 fráköst fyrir Toronto, Vince Carter skoraði 20 stig og tók 9 fráköst og Chris Childs skoraði 12 stig.