Shaq leikmaður aprílmánaðar! Shaquille O'Neal, leikmaður Los Angeles Lakers var valinn leikmaður mánaðarins eftir að hafa leitt lið sitt til átta sigurleikja í röð. Þetta voru síðustu átta leikirnir fyrir úrslit en kappinn sá var ekkert að spara sig. Shaq skoraði í níu síðustu leikjum sínum yfir 30 stig og tvisvar í röð 39 stig. Meðalskorið hjá honum er nú yfir þennan mánuð: 33.7 stig að meðaltali í leik, og með nýtinguna .588

Aðrir leikmenn sem voru að standa sig vel þennan mánuð voru: Jalen Rose(Indiana), Lamar Odom(L.A. Clippers), Ray Allen(Milwaukee), Tracy McGrady(Orlando), George Lynch(philadelphia) og að lokum Tim Duncan(San Antonio).