Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Eftir lélegt gengi að undanförnu, þar sem sex leikir töpuðust í röð, tókst Portland Trailblazers að vinna sinn annan sigur í röð þegar liðið lagði Utah Jazz á útivelli, 101-99. Scottie Pippen átti stærstan þátt í sigrinum en hann skoraði átta stig á síðustu tveimur mínútum leiksins. Pippen var stigahæstur hjá Portland með 25 stig, Bonzi Wells skoraði 22 og Rasheed Wallace skoraði 21 stig. Danny Manning skoraði mest fyrir Utah, 25 stig, Karl Malone skoraði 24 stig og tók 8 fráköst og Donyell Marshall skoraði 12 stig og tók 9 fráköst.