Sælir guttar!

Ég geri ráð fyrir því að einhverjir (flestir) kannist við And1 mixteipin. Eða hvað?

Ég vildi bara láta ykkur vita af þýsku teipi sem ég rakst á um daginn. Þar er 18 ára þýsk/amerískur gutti að nafni German Graham, í aðalhlutverki. Það vill svo skemmtilega til að German þessi er ættleiddur sonur Samuel nokkurs Graham sem spilaði í Íslandi eitt tímabil ('96, ef ég man rétt)og vann m.a. fyrstu (að ég held) troðslukeppni KKÍ. Hann býr nú í Þýskalandi þar sem hann rekur körfuboltabúðir fyrir unga leikmenn í Þýskalandi ásamt því að reka umboðsskrifstofu fyrir leikmenn.

Hot Sauce (And1 mixtape guru), segir í viðtali að hann hafi mikið verið að horfa á þetta teip og að hann sé mjög hrifinn af German og hans boltameðferð.

Ef þið viljið tékka á þessum gutta, þá getið halað þetta teip niður héðan: http://www.slammers.de/_germans-finest.htm

Tékkið á þessu, og leyfið mér endilega að heyra hvað ykkur finnst.