Bakvörður Indiana Pacers Reggie Miller skráði nafn sitt í sögubækurnar í nótt, þegar lið hans sigraði Sacramento í NBA körfuboltanum. Miller skoraði 24 stig í leiknum og hefur nú skorað 2 þúsund 3-stiga körfur, fyrstur manna í sögu NBA deildarinnar. Miller náði öðrum áfanga í leiknum þegar hann braut 21 þúsund stiga múrinn og er nú í 21. sæti yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi