Harlem Globetrotters til landsins Samkvæmt fréttablaðinu í dag er Harlem GLobetrotters liðið væntanlegt aftur til landsins og heldur 2 sýningar 22. maí og hefst miðasalan 8. mars. EIns og flestum er kunnugt kom þetta stórskemmtilega sýningarlið til landsins fyrir um tveimur árum (vá, svona langt síðan) og fór ég á sýninguna og skemmti mér konunglega við að sjá þetta lið leika listir sínar. Mun færri komust að en vildu síðast … enda var uppselt á allar sýningar liðsins síðast (allavegana í Laugardalshöll).

Ég hvet alla þá sem fóru ekki á þetta síðast að kíkja á þetta en þetta er algjör snilld. Ótrúlega skemmtilegar troðslur og bara … skemmtileg sýning þar sem maður getur hlegið oftar en einu sinni þegar lukkudýr Glotetrotter … hann Globie fer að stríða áhorfendum. Það mætti halda að þessir leikmenn séu bara einfaldlega heppnustu mannfjandar jarðarinar þegar gaurarnir taka sig til og kasta einhvernveginn aftur fyrir sig frá miðju og hitta spjaldið ofan í.

Ekki er búið að gefa upp miðaverð en það verður komið bráðlega. Ég man ekki alveg hvað kostaði á þá þegar ég fór fyrir 2 árum. Ætli það sé ekki eitthvða í kringum 3.000 kall. Sjálfur er ég ekki viss hvort að ég nenni á þetta aftur … mér finnst eins og þetta hafi verið í gær.