Körfuboltaunnendur athugið!!!
4-8 mars verður boðið uppá ferð til Minnesota til að sjá leiki
Minnesota-Houston, Minnesota-Boston og 1 háskólaleik.
Fararstjóri verður fyrrum NBA leikmaðurinn Pétur Guðmundsson.
Ótrúlegt verð: Flug, gisting, miðar: Allur pakkinn á 55.000 kall að mig minnir.
Minnesota Timberwolves eru með næstbesta liðið í NBA eins og staðan er í dag og inniheldur liðið frábært tríó (Garnett, Cassell, Sprewell)
Houston Rockets eru með sterkt lið og þeirra bestu menn eru Steve Francis og kínverski risinn Yao Ming.
Boston eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og fyrir þeim fara Paul Pierce og “gormurinn” Ricky Davis.
Þessi ferð hefur lítið verið auglýst og þegar ég heyrði að það væri ekki komin næg þáttaka ákvað ég að láta fólk vita af þessu því að þetta er ferð sem enginn ætti að missa af enda á fáránlega góðu verði.
Áhugasamir hafi samband við Icelandair (endilega bókið ykkur svo að ég missi ekki af þessu vegna lítillar þáttöku):o)