Enn gerist það. Portland Trailblazers halda áfram að skipta vandræða mönnum sínum. Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann Shareef Abdur-Rahim skorar 27 stig og tekur 10 fráköst fyrir Hawks í óvæntum sigri Hawks á Dallas, þá er hann trade-aður ásamt Theo Ratliff og Dan Dickau. Hawks fengu í staðinn þá Rasheed Wallace og Wesley Person. Billy Knight, general manager hjá Hawks segist ekki ætla að dæma Rasheed eftir hvað aðrir segja um hann, heldur hann er hjá þeim.Á síðasta tímabili var Wallace dæmdur í 7 leikjabann eftir að hóta dómara eftir leik. Á 2000-2001 tímabilinu setti hann met í NBA með 41 tæknivillu.
Shareef Abdur-Raheem var valinn þriðji í nýliðavalinu árið 96 af Vancuver. Kom til Hawks tímabilið 01-02. Stigaskorið hans hefur alltaf verið mjög nálægt 20 stigum í leik og rétt yfir 9 fráköst og með um 48% skotnýtingu. Theo Ratliff hefur reynst Atlanta alveg ágætlega. Rétt yfir 8 stig í leik og rétt yfir 7 fráköst. Er líklegt að hann muni berjast við Dale Davis um C: stöðuna. Dan Dickau hefur ekki getað neitt frá því að hann kom í deildina. 3,7 stig á nýliðaárinu og 2,1 í ár. En hann böggaði mig samt heavy mikið í NBA Live.
Kíkjum nú aðeins á fenginn hjá Atlanta. Eins og ég hef minnst á er hann Wallace MIKILL vændræðadrengur. En engu að síður góður körfuknattleiksmaður. Draft-aður fjórði árið 95 af Washington Bullets (held að þeir hétu það þá). Skiptur á næsta ári til Portland og hefur verið þar síðan (nema núna). Á undanförnum árum hefur hann verið að skora um 19 stig í leik og taka yfir 7 fráköst. Bara mjög svipaður og Abdur-Raheem.
Wesley Person var draft-aður árið 94 af Phoenix. Var þar þrjú tímabil og fór svo til Cleveland. Var þar í 5 ár svo var haldið til Memphis. Kom síðan þetta tímabil til Portland. Ferillinn byrjaði vel miðað við að hann var draft-aður 23. Að skora yfir 12 stig fyrstu 5 árin sín en árið í ár hefur ekki verið neitt sérlega skemmtilegt hjá honum. Byrjaði tímabilið hjá Memphis þar sem hann spilaði 16 leiki og skoraði 5 stig (í leik). Síðan skiptur til Portland og nú er hann aftur trad-aður.
Hawks græddu þannig á skiptunum að þeir losnuðu við smá launavesen en Adbur-Raheem græðir meira á þessu ári en Wallace. En ég veit ekki. Ekki myndi ég vilja hafa Rasheed Wallace í mínu liði. Mér finnst Portland græða mjög á þessu losna við vandræðagemsa og fá frábæran leikmann í staðinn. En ég held að Wallace verði bara settur í center-inn hjá Hawks. Enda enginn annar stærri en hann eða betri valkostur.