Þegar liðin eiga u.þ.b. 20 leiki eftir, er spennan orðin óbærileg og menn spyrja sig hverjir verða efstir. Í Vesturdeildinni er Utah Jazz með besta vinningshlutfallið en fimm lið eru má segja í einum hnapp. Fyrir nokkrum dögum var Portland efst í Vestrinu en þeir hröpuðu niður í fimmta sætið þegar þeir töpuðu tveimur í röð, sem sýnir hve jafnt þetta er. San Antonio luku vel heppnaðri keppnisferð með því að leggja Portland og L.a. Lakers á tveimur kvöldum.

Í austurdeildinni virðist Philadelphia vera nokkuð öruggt með efsta sætið.

En hverjir verða efstir í vesturdeildinni? Því er svo sannarlega vand svarað.

Stock12