Jordan búinn að fá nóg af Strickland Michael Jordan, framkvæmdastjóri Washington Wizards, og Rod Strickland hafa að undanförnu verið að elda grátt silfur saman. Strickland hefur ekki verið að mæta á æfingar hjá Wizards og hefur gefið þá afsökun að hann hafi verið “veikur”. Jordan hefur fengið nóg og gerðu þeir samkomulag að rifta samningnum hans hjá félaginu, og ekki veit ég hvor er ánægðari.

Jafnvel með þann stimpil á bakinu að vera talinn vandræðagemsi, hafa nokkur NBA lið augastað á honum, en það er líklegast að hann muni fara til aftur til Portland, en honum var skipt þaðan til Wizards í skiptum fyrir Rasheed Wallace. Það fer ekki milli mála hver fékk meira úr þeim skiptum.