Alonzo Mourning ---- Career End Alonzo Mourning lagði skóna á hilluna í dag, 33 ára að aldri, af völdum þess að hann getur ekki spilað lengur vegna “medical condition” … hvað sem verið er að meina með því. Mourning var sign-aður sem free agent af New Jersey Nets þetta tímabilið, spilaði 12 leiki og skoraði 8 stig á leik og var með 2,3 fráköst. Þetta var hans 12. tímabil í NBA deildinni. Alonzo er með einhversskonar nýrna-sjúkdóm og spilaði ekkert á síðasta tímabili að sökum þess.
Svo að þetta tímabil var svona … hálfgerð comeback tilraun hjá honum.

Alonzo kom var draftaður annar, eftir Shaq tímabilið 1992-1993af Charlotte Hornets. Hann var þekktur sem rosalegur varnarmaður og sterkur leikmaður. Leikmenn urðu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir ætluðu að mæta Mourning inní teig. Sem nýliði skoraði hann 21 stig, tók 10,3 fráköst og varði 3,47 skot sem er ekki slæmt miðað við nýliða. Var valinn í All-Rookie first team. Sjö sinnum í stjörnuleiknum, tvisvar sinnum varnarmaður ársins og vann Gullverðlaun á Ólympíu leikunum með Bandaríkjunum árið 2000.

Mourning var greindur með þennan nýrnasjúkdóm árið 2000, og þarf hann bráðlega að fá gefins nýru/nýra.

Mourning endaði ferilinn með 20 stig í leik, 9,7 fráköst og 2,98 varin skot. Sorglegt að sjá þennan leikmann þurfa að hætta, stórkoslegur leikmaður.