Ég vill þakka Nawg fyrir gott framlag með spurningar en það eru bara svo margir að hvarta yrfir því að þetta hafi verið of létt svo ég ætla að koma með nokkrar erfiðar.



1.Fyrir hvað stendur A.C. hjá A.C. Green?

2.Iverson og Wilt Champerlain hafa báðir spilað með Philadelphia og orðið stigahæðstu leikmenn deildarinar. En 76ers hafa átt tvo aðra leikmenn sem hafa náð þeim áfanga, hvað heita þeir og hvaða ár voru þeir stigakóngar?

3. Þegar Magic johnson gaf það út að hann væri hættur að leika í nba vegna hiv veiru, þá þurfti nánast óþekktur leikmaður að spila PG fyrir lakers en hann var fengin fyrir tímabilið til þess að vera varamaður Magic.Hvað heitir þessi leikmaður?

4. Hvaða lið í dag hefur þurft að bíða lengst eftir því að komast í úrslittakeppni NBA?(Og er enn að bíða)

5.Hvaða lið hefur skorað fæstu stig í einum leik? hvaða ár var það? á móti hverjum?

6.Spurt er um leikmann, Hann tók þátt í fyrstu troðslukeppnini(1976 ABA), Hann var sagður vera harður í horn að taka og fékk viðurnefnið hesturinn. Hann spilaði með sama liðinu í NBA í 10 ár og endaði svo sem þjálfari liðsins. Þrátt fyrir að liðið náði misjöfnum árangri þegar hann var að spila þá stóð hann sig mjög vel og átti nokkra stjörnuleiki.

7. Spurt er um leikmann, Hann var valinn fyrstur í nýliðar valinu. Hann byrjaði á því að skora 19 stig og taka 5 fráköst að meðatali á nýliðatímabilinu. Næstu sex tímabil þá var hann með frá 22,6 stigum upp í 29,5 stig. Þar sem stiga skorið fór upp og niður á víxl. Eftir þetta var hann seldur og fóru þá tölunar niðrá við en hann fékk samt meira hrós og liðið hans varð sigursælt.

8. Spurt er um leikmann. Hann spilaði mjög fá ár í NBA( var alltaf meiddur) vann tvo NBA titla með tveimur liðum, hann var mjög umdeildur því oft virtist hann ekki hafa hugan við leikinn(sérstaklega í byrjun) hann var hálfgert blómabarn eins og það var kallað. Hann náði að vinna einn MVP en er samt þekktastur fyrir frábæran háskólaferil. Hvað heitir þessi leikmaður?

9. Hvaða lið hefur unnið flesta NBA leiki frá upphafi? en hvaða lið er með besta vinningshlutfallið?

10. HVaða leikmenn í NBA í dag hafa unnið 5 eða fleiri NBA titla?
Vertu þú sjálfur og gerðu það sem þú villt