Allen Iverson Þeir sem segja að minn maður Allen Iverson sé bara einhver einspilari ættu aðeins að fylgjast með honum þessa dagana en hann er að brillera þessa dagana. Síðasti leikur hans í nótt þá gerði hann næstum því tvöfallda þrennu. Hann skoraði 38 stig, gaf 9 stoðsendingar og stal 8 boltum. Að auki þá er hann líka að bæta nýtinguna sína en hann hitti 17 af 25 skotum sínum. Í tveim leikjum á undan þessum í nótt þá gaf hann 10 stoðsendingar í báðum leikjunum. Er Allen Iverson að breytast verulega sem leikmaður eða er þetta bara einstakir leikir. Ég er alveg rosalega ánægður með minn mann þessa dagana. Philadelphia eru líka að brillera þessa dagana og eru þeir komnir í 3 sætið í austurdeildinni og ég trúi að þeir ná langt þegar úrslitakeppnin hefst.