Ég veit að það er nokkuð langt síðan ég ætlaði að setja þetta inn en ég hef bara ekkert komist inn á netið í viku, en hérna eru svörin úr triviunni.

Spurningarnar og svörin eru eftirfarandi:

1. Spurt er um leikmann
Hann lék m.a. með Chicago Bulls, Atlanta Kings og Orlando Magic. Hann var mjög góður skorari en hafði meiri áhuga á dansi og skotveiði heldur en körfubolta. Eftir NBA ferilinn lék hann eitt ár á Ítalíu, tímabilið 1991-‘92 og skoraði yfir 29 stig í leik þar.
Hefur leikið með m.a. Nick Anderson, Mookie Blaylock, Moses Malone og Dominique Wilkins
Svar: Reggie Theus

2. Spurt er um lið
Það hefur ekki ennþá unnið meistaratitil og besti árangur þeirra er að komast í úrslit Austurdeildarinnar tímabilið 1975-’76. Tímabilið 1988-’89 voru þeir reyndar komnir með sterkan hóp, hvítan pointara sem er/var ein besta vítaskytta deildarinnar, frábæran center og sterkan framherja sem hefur nokkrum sinnum komist í stjörnuleikinn. Samt komust þeir ekki langt og heldur ekki næstu tímabil þrátt fyrir að hafa haft sterkan hóp. Núna eru þeir eitt af lélegustu liðum deildarinnar og áttu þeir líklegast verstu skiptin fyrir tímabilið
Svar: Cleveland. Centerinn var Brad Daugherty, framherjinn Larry Nance og leikstjórnandinn Mark Price. Skiptin voru Andre Miller og einhver varamaður fyrir Darius Miles, varamann og valdrátt í nýliðavalinu.

3. Spurt er um leikmann
Byrjaði feril sinn hjá Indiana þegar það fór í NBA deildina en spilaði mest allan feril sinn hjá öðru liði (10 af 15 árum) og spilaði langbest hjá því liði. Hann var stigahæsti leikmaður 9. Áratugsins, með 25.9 stig í leik en minnkaði meðalskorið um heil 4.4 stig á hinum fimm árunum sem hann spilaði. Hefur orðið oftar en einu sinni stigahæsti leikmaður deildarinnar (í annað skiptið var hann samt ekki með hæsta meðalskor í leik).
Hefur leikið með m.a. Kiki Vandeweghe og Chris Jackson/Mahmoud Abdul-Rauf.
Svar: Alex English

4. Spurt er um leikmann
Hann var án efa einn besti evrópski leikmaðurinn sem hefur spilað í NBA. Hittni hans var ótrúleg og hann var talinn einn besta skyttan í NBA. Þegar hann spilaði í Evrópu átti hann mörg ótrúleg met, t.d. skoraði hann 112 stig í einum leik og 69 stig í úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða. Hjá fyrsta liði sínu fékk hann lítið að spila en þegar hann skipti um lið byrjaði hann að spila betur og betur og var að ljúka frábæru tímabili þegar hann lenti í bílslysi og lést, þann 7. júní.
Hefur leikið með m.a. Derrick Coleman, Clyde Drexel og Kenny Anderson
Svar: Aðeins of létt, Drazen Petrovic

5. Spurt er um leikmann
Gamall „refur" sem er ennþá í fullu fjöri. Er enginn sérstakur sóknarmaður en var einn besti varnarmaður deildarinnar og er ennþá í hópi þeirra bestu. Samt er hann fín skytta inni í teig en skýtur bara ekki mikið. Er góður vinur Jordan og spilaði með honum. Hann hefur oftar en einu sinni orðið frákastahæstur. Núna er hann kominn aftur til liðsins sem hann byrjaði hjá.
Hefur spilað með m.a. Michael Jordan, Patrick Ewing og Jalen Rose.
Svar: Charles Oakley

6. Spurt er um leiktímabil (skrifið þá heilt tímabil (2002-03) ekki eitt ár (2003))
Í deildinni voru tveir leikmenn sem spiluðu óaðfinnanlegan leik og voru að eiga sitt besta ár frá upphafi. Það voru þeir Michael Jordan sem var orðinn óstöðvandi stigamaskína og skoraði meira en nokkurn tímann fyrr og síðan Magic, sem að leiddi Lakers að NBA titli. Kareem Abdul-Jabbar var orðinn gamall og þrátt fyrir að vera ennþá lykilleikmaður í Lakers þá lækkaði stigaskorið hans meira en það hafði nokkurn tímann áður gert. Vestrið vann stjörnuleikinn og Michael Jordan varð troðslukóngur.
Svar: 1986-87

7. Spurt er um leikmann
Var ekki valinn fyrr en fjórtándi í nýliðavalinu og lék aðeins rúmar 17 mínútur fyrsta árið sitt. Síðan varð hann einn besti leikmaður deildarinnar, en var ekki með nógu góðum leikmönnum til þess að vinna titil. Á seinni árum sínum skipti hann yfir í annað lið og vann með því loksins sinn fyrsta meistarahring. Hefur troðið á körfu í 338 cm hæð.
Hefur spilað með m.a. Buck Williams, Chris Dudley og Sam Cassell.
Svar: Clyde Drexler

8. Á gullárum LA Lakers (1979-88) þegar Lakers hraðlestin vann 5 titla á einum áratugi var helsti styrkleikur þeirra byrjunarliðið. Það voru sjö leikmenn sem voru helstu byrjunarliðsleikmenn þeirra á þessum árum. Nefndu 5 þeirra.
Mögulegir leikmenn: Magic, Abdul-Jabbar, Jamaal Wilkes, Byron Scott, Michael Cooper, James Worthy, A.C. Green, Kurt Rambis.

9. Spurt er um leikmann
Hann var lykilleikmaður í meistaraliði Detroit 1988-90 og í einvíginu á móti Lakers tryggðu hann og annar leikmaður Detroit liðinu sigurinn með ótrúlegum leik. Mög góður sóknarmaður, frábær vítaskytta og ennþá betri varnarmaður. Spilaði með Dreamteam II á heimsmeistaramótinu í Toronto.
Hefur spilað með m.a. Vinnie Johnson, Bill Laimbeer og Dennis Rodman
Svar: Joe Dumars, ekki Isiah Thomas eins og sumir sögðu.

10. Margir frábærir leikmenn hafa spilað með Philadelpha 76ers, áður Syracuse Nationals í gegnum tíðina. Dolph Schayes var aðal leikmaður Syracuse þegar NBA deildin var að byrja, Wilt Chamberlain var besti leikmaður þeirra þegar þeir fluttu til Philly, Doktorinn, Julius Erving sýndi takta sem enginn hafði séð áður með þeim á 8. áratugnum, Moses Malone var besti centerinn á sínum tíma, snillingurinn Charles Barkley var ótrúlegur og núna er Allen Iverson að skora öll stig þeirra. En sá leikmaður sem hefur skorað flest stig fyrir liðið er Hal Greer, sem spilaði á sama tíma og Chamberlain. Er þessi fullyrðing sönn? Ef ekki, hver hefur þá skorað flest stig fyrir liðið?
Svar: Satt, Greer skoraði 21.586 fyrir liðið í 1.122 leikjum.


Tveir svöruðu öllu réttu, þeir Sporti og jois, Xzibit var með 9 rétt en aðrir minna.

Það tóku alltof fáir þátt í þessu og mér finnst að það ætti að gera þetta aðeins áhugaverðara, hafa þetta kannski eins og á hokký áhugamálinu þar sem sigurvegarinn fær einhver stig og síðam þyrfti að gera sérstakan kubb fyrir þetta.

——————————-
Zake