Kobe í stuði Kobe bryant er hreint út sagt að brillera þessa dagana í stigaskori en í nótt skoraði hann 51 stig á 31 mínútum í sigri Lakers á Denver Nuggets 113-102 sem verður að teljast nokkuð mikið. Jafnframt var þetta 7. leikurinn í röð sem hann skorar meira en 35 stig og jafnframt 11 leikurinn vetur sem hann skorar meira en 40 stig sem verður nú að teljast nokkuð gott. Hann er þá kominn með rúmlega 29 stig á meðaltali á leik. Lakers eru núna bara einum sigri frá Playoff sæti.

Michael Jordan átti líka mjög góðan leik í nótt með liði Washington Wizards þar sem hann skoraði 23 stig, tók 6 fráköst og sendi 12 stoðsendingar í sigri wizards á L.A Clippers og eru wizards líka bara einum sigri frá því að komst í 8. sæti austurdeildar ásamt Orlando Magic.

Golden State eru einnig að sækja sig á og eru nálægt 50% vinningshlutfalli og eru meðal annars komnir yfir Seattle Supersonics sem byrjuðu svo vel í vetur en hafa dottið niður undanfarna mánuði.